Um Frost
FYRIRTÆKIÐ
Fyrirtækin Frost Music og Frostroses Entertainment hafa s.l. 8 ár haldið jólatónleikana FROSTRÓSIR sem allir landsmenn þekkja og slegið hafa öll aðsóknarmet. Tónleikar Frostrósa voru haldnir út um allt land dagana 1. - 11. desember og þeim lauk með fernum tónleikum í Laugardalshöll helgina 12. og 13. desember.
NÝIR TÓNLEIKAR - TENÓRARNIR 3
Nú verður bætt við hátíðartónleikum TENÓRANNA 3. Tónleikarnir verða haldnir í Háskólabíó 3. janúar og hefjast kl. 20:00. Miðasala fer fram á miði.is og í verslunum Skífunnar í Kringlunni og á Laugavegi.
Fögnum nýju ári, gerum okkur glaðan dag og upplifum ógleymanleg augnablik á glæsilegum hátíðartónleikum Tenóranna 3.
Sjáumst 3. janúar 2010 í Háskólabíó.







