Tónleikarnir

"Tenórarnir 3" eru einstakir hátíðartónleikar sem haldnir verða í Háskólabíó 3. janúar 2010 ásamt stórhljómsveit og góðum gestum.  Tenórarnir eru Jóhann Friðgeir Valdimarsson, Kolbeinn Ketilsson og Snorri Wium. 
 
"Tenórarnir 3" hafa skipað sér stóran sess í hjörtum landsmanna því á undanförnum árum hafa þeir haldið hátíðartónleika í Íslensku óperunni og Landholtskirkju.  Einnig hafa þeir sungið á Þorláksmessu í miðbæ Reykjavíkur við mikinn fögnuð áheyrenda. 
 
Á tónleikunum verða fluttar nokkrar af vinsælustu tenóraríum óperubókmenntanna ásamt annarri skemmtilegri söngleikjatónlist. 
 
Hefjið nýtt ár með hátíðlegri tónlist í flutningi frábærra listamanna.