Tenórarnir

Jóhann Friðgeir Valdimarsson
Jóhann Friðgeir Valdimarsson tenór hóf söngferil sinn árið 1995 í Söngskólanum í Reykjavík hjá Garðari Cortes. Kennarar hans voru síðan Magnús Jónsson, Bergþór Pálsson og Þuríður Pálsdóttir sem hann lauk hjá 8. stigs prófi vorið 1998. Sama ár fór hann til náms í Mílanó hjá prófessor Giovanna Canetti, yfirkennara hjá Conservatori Giuseppi Verdi. Hann sótti líka einkatíma hjá M. Angelo Bertacchi í Modena og M. Franco Ghitti í Brescia. Jóhann Friðgeir hefur sungið fjölda einsöngstónleika á Íslandi og meginlandi Evrópu þar sem hann hefur ávallt fengið framúrskarandi viðtökur og dóma.
Jóhann Friðgeir hefur gefið út þrjá hljómdiska frá árunum 2001, 2002 og 2006.   
Undanfarið hefur hann sungið mörg aðalhlutverk úr óperuheiminum bæði hér heima og erlendis en þeirra á meðal eru; G.Verdi: Alfredo úr La Traviata, Macduff úr Macbeth, Radames úr Aida. G.Puccini: Cavaradossi úr Toscu, Pinkerton úr Madama Butterfly. Bizet: Don José úr Carmen. Shostakovich: Sinowi úr Lady Macbeth of Mtsensk. Mossorgsky: Dmitri/Grigorij úr Boris Godunov ásamt fjölda sálumessa.   
Framundan erlendis hjá Jóhanni Friðgeir eru hlutverk Pinkerton úr Madama Butterfly og Cavaradossi úr Tosca eftir G. Puccini, Radames úr Aida og Ismaele úr Nabucco eftir G. Verdi. Canio úr Pagliacci eftir R. Leoncavallo. Turiddu úr Cavalleria Rusticana eftir P. Mascagni og Lohengrin úr Lohengrin eftir R.Wagner auk fjölda tónleika.
 
Jóhann Friðgeir hefur verið einn af tenórunum sem sungið hafa á tónleikum Frostrósa í gegnum árin.

 


Kolbeinn J. Ketilsson
Kolbeinn J. Ketilsson tenór stundaði nám í Nýja Tónlistarskólanum hjá  Sigurði Demetz og lauk síðar prófi við Tónlistarháskólann í Vínarborg.
Meðal óperuhlutverka Kolbeins eru titilhlutverkið í Ævintýrum Hoffmanns, Pinkerton í Madama Butterfly, Macduff í Macbeth, Tannhäuser, Erik í Hollendingnum fljúgandi, Tristan, Max í Der Freischütz, Cavaradossi í Toscu, Don Carlo, Radames og Don Josè í Carmen. Kolbeinn hefur sungið í mörgum af þekktustu óperuhúsum í evrópu og einnig komið fram í N-Ameríku og Asíu. Hjá Íslensku óperunni söng hann Alfredo í La Traviata, Rodolfo í La Bohème og Bacchus í Ariadne auf Naxos.
Kolbeinn hefur komið fram sem einsöngvari í fjölmörgum sinfónískum verkum, m.a. 9. sinfóníu Bethovens, Requiem eftir Dvorak, Elía eftir Mendelssohn og Requiem eftir Verdi. Meðal hljómsveitarstjóra sem hann hefur sungið með má nefna Zubin Mehta, Lorin Maazel, A. Pappano, Kurt Mazur og Fabio Luisi.
 
 
Snorri Wium
Snorri Wium tenór hóf söngferil sinn með Pólýfónkórnum, Mótettukór Hallgrímskirkju og Kór Íslensku óperunnar. Hann stundaði nám við Söngskólann í Reykjavík hjá Magnúsi Jónssyni og Dóru Reyndal. Að því loknu hélt hann til Vínarborgar og lauk diplom-prófi frá Konservatorium árið 1992. Aðalkennarar hans þar voru Svanhvít Egilsdóttir og Carol Blencho-Mayo. Þar fór hann m.a. með hlutverk Rodolfos í La Bohème, Lionels í Mörtu og Hans í Seldu brúðinni.
Snorri hefur sungið með Jugendstil Theater, Salzburger Tourne, við óperuhúsið í Lippstadt, Flensburg og víðar. Þá söng hann þrjú sumur í kór Wagnerhátíðarinnar í Bayreuth. Snorri var fastráðinn sem einsöngvari við óperuna í Coburg í Þýskalandi á árunum 1992-1996. Í Íslensku óperunni hefur hann m.a. sungið hlutverk Dr. Blind í Leðurblökunni vorið 1999, Monostatosar í Töfraflautunni haustið 2001. Þá fór hann með hlutverk stýrimannsins í uppfærslu Íslensku óperunnar, Þjóðleikhússins, Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Listahátíðar í Reykjavík á Hollendingnum fljúgandi vorið 2002.
Veturinn 2003 söng hann hlutverk Malcolms í Macbeth og s.l. vetur titilhlutverkið í óperunni Werther og hlutverk Don Basilios og Don Curizos í Brúðkaupi Fígarós og haustið 2004 söng hann hlutverk Tóbíasar Ragg í Sweeney Todd hjá Íslensku óperunni.